

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli auglýsir eftir kennurum til starfa. Um er að ræða starf umsjónarkennara á unglingastigi og kennara til að sinna fjölbreyttri kennslu á öllum stigum.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Starfshlutföll geta verið samkomulag við skólastjóra sem er næsti yfirmaður en störfin eru laus nú þegar.
Starfið var upphaflega auglýst 18.9 2026 með umsóknarfrest til 02.10 2026 en ákveðið var að framlengja umsóknarfrestinn um tvær vikur.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámsskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda i samráði við samkennara og skólastjórnendur
- Að taka virkan þátt í teymiskennslu, teymisvinnu og mótun og þróun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi
- Mikil áhersla á teymiskennslu, samþættingu námsgreina og skapandi skólastarf
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur
- Þátttaka í að þróa faglegt skólastarf
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði
- Reynsla af kennslu æskileg
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
- Stundvísi og samviskusemi
- Hreint sakavottorð
Ісландська










