Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfis- og framkvæmdasviði

Viltu taka þátt í að móta og þróa Reykjanesbæ til framtíðar?

Reykjanesbær er ört vaxandi sveitarfélag þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og fjölbreytt og spennandi verkefni eru framundan. Á umhverfis- og framkvæmdasviði starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta sérfræðiþekkingu sem vinnur saman að metnaðarfullri þróun sveitarfélagsins. Áhersla er lögð á vandað skipulag, fjölbreytt lóðaframboð og sjálfbæra þróun byggðar.

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra skipulagsmála sem vill taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu Reykjanesbæjar. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem snýr meðal annars að skipulagsmálum, lóðarúthlutunum og stjórnsýslu tengdri málaflokknum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á skipulags- og þróunarmálum, sýnir frumkvæði og fagmennsku og hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta stýrt verkefnum frá upphafi til enda, átt árangursríkt samstarf við ólíka hagaðila og tileinkað sér lög, reglur og stjórnsýslu sem tengjast starfssviðinu.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með skipulagsverkefnum sveitarfélagsins.
  • Umsjón með málsmeðferð og afgreiðslu skipulagstillagna.
  • Umsjón með lóðarúthlutunum.
  • Undirbúningur og þátttaka í fundum skipulagsráðs.
  • Umsjón með innheimtu gatnagerðargjalda.
  • Gerð og umsýsla lóðarleigusamninga.
  • Samskipti og samstarf við íbúa, umsækjendur, ráðgjafa, hönnuði og aðra hagaðila.
  • Önnur verkefni á sviði skipulagsmála eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði skipulagsfræði, arkitektúrs eða landslagsarkitektúrs, eða önnur menntun sem uppfyllir viðeigandi skilyrði samkvæmt 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Góð reynsla af skipulagsmálum og málsmeðferð skipulagsáætlana.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum og faglegri þekkingu á skýran hátt.
  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu og þekking á lagaumhverfi skipulagsmála er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á teikni- og skipulagsforritum.
  • Rík þjónustulund og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, nákvæmni og góð skipulagsfærni.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig skýrt í ræðu og riti.
  • Kunnátta í erlendum tungumálum er kostur.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Реклама створена 23. September 2026
Кінцевий термін подання заявки6. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Технологічно підкованийPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Державне управлінняPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Скрупульозність
Професії
Мітки роботи