Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda

Reykjanesbær leitar að verkefnastjóra til starfa við eignaumsýslu á umhverfis- og framkvæmdasviði. Starfið felur í sér verkefnastjórn nýframkvæmda og viðhalds fasteigna sveitarfélagsins, allt frá undirbúningi og áætlanagerð til eftirfylgni með framkvæmdum.

Við leitum að skipulögðum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, vinnur sjálfstætt og á auðvelt með að eiga fagleg samskipti við ólíka aðila.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og verkefnastjórn nýframkvæmda og stærri viðhaldsverkefna fasteigna.
  • Gerð útboðsgagna, kostnaðar- og tímaáætlana og eftirfylgni með þeim.
  • Þátttaka í undirbúningi og hönnun nýframkvæmda.
  • Yfirferð og rýni hönnunargagna, tækniforskrifta, verktakasamninga og breytingabeiðna.
  • Þátttaka í innkaupaferlum og mat á þjónustu og gæðum birgja.
  • Samstarf og samskipti við verktaka, ráðgjafa og notendur mannvirkja.
  • Þátttaka í fjárhagsáætlunargerð og þróun verkefna á sviðinu.
  • Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða byggingarfræði, eða sambærileg háskólamenntun er skilyrði.
  • Sveinsbréf í iðn- eða tæknigrein er mikill kostur.
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Þekking og reynsla af byggingarframkvæmdum er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði.
  • Sjálfstæð vinnubrögð, góð skipulagshæfni og hæfni til ákvarðanatöku.
  • Góð samskiptahæfni og almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Реклама створена 25. September 2026
Кінцевий термін подання заявки8. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.Загальні знання комп’ютераPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Державне управлінняPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Скрупульозність
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи