Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Vitann – Lækjarskóli

Félagsmiðstöðin Vitinn býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Vitinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ráðið er frá ágúst 2025.

Umsóknarfrestur er til og með 26. júní

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Реклама створена 16. June 2025
Кінцевий термін подання заявки26. June 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Sólvangsvegur 4, 220 Hafnarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи