Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri í frístund í einhverfudeild - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli auglýsir eftir aðstoðardeildarstjóra í frístund í einhverfudeild skólans í 75% starf frá 5. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.

Tómstundamiðstöð Hraunvallskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunsel, frístundaheimilinu í einhverfudeild og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundarúrræði i einhverfudeild er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 16:30 alla virka daga, háð getu, þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla.

Hraunvallaskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.

Verkefni aðstoðardeildarstjóra:

Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðvar og sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón og ábyrgð með starfsemi tómstundamiðstöðvar ásamt deildarstjóra
  • Starfar með nemendum með fötlun og sértækan vanda
  • Útbýr sjónrænt skipulag fyrir nemendur með fjölþættan vanda og aðlaga umhverfið að fjölbreyttum þörfum einstaklinga.
  • Sinnir forvarna- og fræðslustarfi um ýmis málefni sem tengjast börnum
  • Sér til þess að upplýsingaflæði til barna, foreldra/forsjáraðila og samstarfsaðila sé virkt
  • Stýrir verkaskiptingu milli starfsmanna og veitir leiðsögn um framkvæmd starfseminnar
  • Stuðlar að góðu samstarfi við ýmsa aðila, s.s. foreldra/forsjáraðila, skóla, félagsþjónustu, önnur frístundaheimili, aðrar stofnanir og samtök sem vinna að málefnum barna
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf (B.A./B.S./B.ed.) í uppeldis- og menntunarfræðum, tómstundafræðum, sálfræði, þroskaþjálfun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með þroskahömlun
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
  • Áhugi á málefnum barna og forvörnum
  • Þekkingu á að vinna með hópastarf
  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Ferilskrá fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, [email protected] og Anna Rut Pálmadóttir deildarstjóri stoðþjónustu, [email protected] eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Реклама створена 24. June 2025
Кінцевий термін подання заявки3. July 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи