
Pósturinn
Pósturinn er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í dreifingalausnum en dreifikerfi Póstsins nær um allt land og allan heim. Höfuðstöðvar Póstsins eru í Reykjavík en fyrirtækið starfrækir starfsstöðvar víðsvegar um landið til að þjónusta Íslendinga sem allra best.
Við hjá Póstinum erum lausnamiðað keppnisfólk og tökum fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum hvað varðar öflugar og hraðar dreifingalausnir sem standast kröfur viðskiptavinarins.
Hjá okkur er lagt mikið uppúr liðsheild, þjálfun mannauðs og góðum starfsanda.

Tollfulltrúi í innflutningsdeild
Pósturinn leitar að nákvæmum og þjónustuliprum tollfulltrúa til starfa í innflutningsdeild á fjármálasviði. Tollfulltrúi ber ábyrgð á vinnslu tollskýrslna og tolltengdra gagna fyrir viðskiptavini Póstsins og á í samskiptum við viðskiptavini og tollayfirvöld. Tollfulltrúi er staðsettur á skrifstofum Póstsins í Reykjavík og heyrir undir deildarstjóra innflutningsdeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnsla og yfirferð tollskýrslna vegna inn- og útflutnings
- Söfnun og yfirferð fylgigagna, reikninga og annarra upplýsinga vegna tollafgreiðslu
- Tryggja að skráning sendinga uppfylli kröfur tollayfirvalda
- Samskipti við viðskiptavini, tollayfirvöld, flutningsaðila og aðra samstarfsaðila
- Greining og úrlausn frávika, þátttaka í umbótavinnu og eftirfylgni með breytingum á reglum og kröfum tengdum tollafgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, tollmiðlaranámskeið er skilyrði
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af tollafgreiðslu, þjónustustörfum eða sambærilegum verkefnum er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á SAP eða öðrum tollkerfum er kostur
- Góð þjónustulund, samskiptahæfni og vönduð vinnubrögð
Реклама створена 29. October 2026
Кінцевий термін подання заявки9. November 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи


