
Intellecta
Intellecta var stofnað árið 2000 og starfar á tveimur sviðum: ráðgjöf og ráðningum. Við vinnum með stjórnum og æðstu stjórnendum við að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja og stofnana. Ráðgjafar okkar hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Ráðgjafarsvið Intellecta sinnir verkefnum s.s. á sviði upplýsingatækni, stefnumótunar og stjórnunar auk þess sem kjarakönnun Intellecta hefur veitt stjórnum og stjórnendum góða innsýn inn í þróun launa á markaði. Ráðningarsvið Intellecta sinnir ráðningum stjórnenda og sérfræðinga bæði fyrir opinberar stofnanir og einkamarkaðinn. Þá sinnir sviðið einnig mannauðsráðgjöf og ráðgjöf til einstaklinga í atvinnuleit.
Á næstunni flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði að Höfðabakka 9, þar sem boðið verður upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.intellecta.is.

Aðstoðarmaður forstjóra
Stórt fyrirtæki í Reykjavík sem starfar á alþjóðamarkaði óskar eftir að ráða traustan og þjónustulipran einstakling í fjölbreytt starf aðstoðarmanns forstjóra. Starfið felur í sér náið samstarf við forstjóra og framkvæmdastjóra fjármálasviðs, auk stuðnings við daglegan rekstur skrifstofunnar, innkaup og innflutning.
Við óskum eftir einstaklingi sem er skipulagður og sjálfstæður, á gott með samskipti og er tilbúinn að ganga í þau verkefni sem þarf að sinna hverju sinni. Mikilvægt er að viðkomandi hafi jákvætt viðhorf og líti svo á að ekkert verkefni sé of stórt eða of smátt. Starfið hentar einstaklingi sem kann vel við fjölbreytileika og hraða, tekur eftir því sem þarf að gera og sinnir því af fagmennsku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bókun og skipulagning ferðalaga, innanlands sem erlendis
- Móttaka gesta, undirbúningur funda og fundargagna ásamt frágangi eftir fundi
- Tollskýrslugerð og umsjón með inn- og útflutningsgögnum
- Skráning og vinnsla upplýsinga í Axapta
- Aðstoð við bréfaskriftir, tölvupóst og almenna skjalavinnslu
- Aðstoð við innkaup á vörum og þjónustu erlendis frá og samskipti við birgja
- Umsjón með ýmsum hagnýtum verkefnum á skrifstofunni og daglegu starfi forstjóra, auk samskipta s.s. við viðskiptavini og birgja
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af innflutningi, tollskýrslugerð og/eða erlendum innkaupum er skilyrði
- Mjög góð skipulags- og samskiptahæfni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Frumkvæði, sjálfstæði og áreiðanleiki
- Þekking og reynsla af Axapta er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega í Microsoft 365
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Реклама створена 27. October 2026
Кінцевий термін подання заявки10. November 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Тип роботи
Навички
AxaptaMicrosoft 365Спілкування електронною поштою
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Tanntæknir / aðstoðarmanneskja tannlæknis
Tannlæknastofan Brosandi ehf.

Shift manager for the front desk
KúKú Campers Ehf.

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Looking for Assistants — Part-Time (2 Positions)
NPA miðstöðin

Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannir tannlæknastofa ehf

Tollfulltrúi í innflutningsdeild
Pósturinn

Við leitum að öflugum liðsfélaga!
Kíró ehf.

Aðstoðarmaður tannréttingasérfræðings
Teinar slf

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogs

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf