Garðabær
Garðabær
Garðabær

Þroskaþjálfi óskast við Sjálandsskóla

Sjálandsskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025.

Sjálandsskóli er grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru 280 nemendur og 60 starfsmenn. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi og lögð er áhersla á skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu með hag nemenda að leiðarljósi.

Leitað er eftir einstaklingi með mikinn metnað og er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með nemendum með þroska- og hegðunarfrávik
  • Vinna með kennurum og öðrum samstarfsaðilum að námi og þroska nemanda
  • Gerð einstaklingsáætlunar, sinna þjálfun, vinna með félagsfærni, aðlaga námsaðstæður og námsefni í samvinnu við annað fagfólk og foreldra
  • Stuðla að velferð nemanda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að starfa sem þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af vinnu með börnum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Реклама створена 23. July 2025
Кінцевий термін подання заявки6. August 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Планування
Професії
Мітки роботи