Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Sumarstarf í þjónustu

Bílaumboðið Askja leitar að þjónustuliprum og ábyrgum aðilum í sumarstörf í innri þjónustu. Starfið er fjölbreytt og felur m.a. í sér þjónustu við viðskiptavini, akstur Öskjuskutlu og verkefni tengd bílaleigu.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, KIA, Honda og Smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks. Virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka erinda í gegnum síma, tölvupóst og rafrænar leiðir
  • Veita upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu, ferla og verklag
  • Móttaka viðskiptavina
  • Útlán, þrif og undirbúningur bílaleigubíla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám eða starfsreynsla í bílgreinum kostur
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Reynsla af þjónustustörfum kostur
  • Tölvukunnátta og færni í notkun upplýsingakerfa
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Af hverju Askja?

Askja leggur áherslu á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Það gerum við með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi til að geta veitt viðskiptavinum afburðaþjónustu. Áhersla er lögð á opin og uppbyggileg samskipti. Leitað er lausna og jákvæðni höfð að leiðarljósi. Öflugt starfsmannafélag er hjá Öskju og reglulegir viðburðir og skemmtanir.

Реклама створена 9. April 2026
Кінцевий термін подання заявки23. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Krókháls 13, 113 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи