Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Starf í afgreiðslu vöruhúss Innnes

Innnes ehf. leitar af öflugum aðila í fullt starf í afgreiðslu í nýju og glæsilegu vöruhúsi fyrirtækisins að Korngörðum 3 í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við viðskiptavini vöruhússins
  • Þjónusta við aðrar deildir Innnes sem eiga erindi í vöruhúsið
  • Móttaka gesta og þjónustuaðila vöruhússins
  • Móttaka sendinga
  • Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsi

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð þjónustulund
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Stundvísi, frumkvæði, dugnaður og nákvæmni
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
  • Reyklaus (Innnes er reyklaus vinnustaður)

Vinnutími er 07:45-16:15 alla virka daga.

Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.

Boðið er upp á fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem boðið er upp á mötuneyti með heitum mat og ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv.

Umsóknarfrestur er til 26.04.2026.

Реклама створена 7. April 2026
Кінцевий термін подання заявки26. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Телефонний зв''язокPathCreated with Sketch.Спілкування електронною поштоюPathCreated with Sketch.Незалежність
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)