Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Stuðningsfulltrúi í frístund – Barnaskóli Kársness

Barnaskóli Kársness óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í frístundina Vinahól.

Barnaskóli Kársness er nýr sameinaður grunn- og leikskóli í vesturbæ Kópavogs. Í grunnskólahluta skólans eru um 300 nemendur í 1. til 4. bekk.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf með börnum að skóladegi loknum. Frístundin Vinahóll starfar í anda stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístundastarfs og klúbbastarfs en þar er lögð áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.

Við óskum eftir stuðningsfulltrúum sem hafa áhuga á að vinna með börnum og veita þeim stuðning í daglegu starfi frístundarinnar. Starfið felur meðal annars í sér að styðja börn í leik, samskiptum og þátttöku í fjölbreyttu frístundastarfi og stuðla að öryggi og vellíðan þeirra. Um tímabundna ráðningu er að ræða, með möguleika á framtíðarstarfi.

Vinnutími er 13:00–16:00, 4–5 daga í viku.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita börnum stuðning í daglegu starfi frístundar

Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi

Stuðla að jákvæðum samskiptum, þátttöku og félagslegri virkni

Stuðla að öryggi og vellíðan barna

Taka þátt í fjölbreyttu frístundastarfi, bæði inni og úti

Vinna í góðu samstarfi við annað starfsfólk frístundar

Ganga í tilfallandi verkefni innan frístundarheimilis

Starfa samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Reynsla og áhugi á starfi með börnum er æskileg

Reynsla af stuðningsstarfi er kostur

Framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg

Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum

Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra

Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Kópavogsbæjar

Fríðindi í starfi

Stytting vinnuvikunnar

Aðgangur að sundlaugum Kópavogs

Реклама створена 11. September 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Тип роботи
Професії
Мітки роботи