
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar samanstanda af íþróttahúsum í hverjum kjarna, sundlaugum, Fjarðabyggðarhöllinni og skíðasvæðinu í Oddsskarði. Í Fjarðabyggð eru fimm íþróttamiðstöðvar ásamt Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Íþróttamiðstöðvarnar eru nýttar sem skólamannvirki, til æfinga og fyrir almenning. Í sveitarfélaginu eru einnig glæsilegar útisundlaugar á Norðfirði og Eskifirði, með heitum pottum, sundrennibrautum og frábærri aðstöðu. Á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Á Stöðvarfirði og í Breiðdal eru litlar útilaugar ásamt heitum pottum í fallegu umhverfi. Skíðasvæðið Oddsskarð er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.

Starfsmaður óskast á Skíðasvæðið í Oddsskarði
Skíðasvæðið í Oddsskarði leitar að öflugum starfsmanni til starfa fyrir komandi skíðavetur.
Meginhluti starfsins felst í snjótroðslu og undirbúningi skíðasvæðisins en viðkomandi mun jafnframt taka þátt í almennu viðhaldi og daglegum rekstri svæðisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á vélum og tækjum, er handlaginn, sjálfstæður í vinnubrögðum og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni við krefjandi en skemmtilegar aðstæður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Snjótroðsla og undirbúningur á skíðabrekkum
- Daglegt eftirlit og umhirða snjótroðara og annarra vinnuvéla
- Viðhald og viðgerðir á vélum og tækjabúnaði
- Viðhald og eftirlit með skíðalyftum og öðrum búnaði skíðasvæðisins
- Undirbúningur svæðisins fyrir opnun og frágangur að loknum opnunartíma
- Snjómokstur og önnur verkefni tengd snjó og færð
- Þátttaka í almennum rekstri og öryggismálum skíðasvæðisins
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa gild vinnuvélaréttindi
- Reynsla af störfum á skíðasvæði er kostur.
- Reynsla af vinnu við vinnuvélar, vélar, stór tæki eða sambærilegan búnað.
- Mikil og góð þekking á viðhaldi, rekstri og umhirðu tækja og búnaðar.
- Þekking á snjó, veðurfari og snjóflóðahættu.
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð hæfni til að greina og leysa vandamál sem upp geta komið í daglegum rekstri.
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Ábyrgðarkennd, stundvísi og rík öryggisvitund.
- Sveigjanleiki og vilji til að vinna á óhefðbundnum vinnutímum þegar aðstæður krefjast þess.
- Gild ökuréttindi.
Реклама створена 16. September 2026
Кінцевий термін подання заявки16. October 2026
Мовні вимоги
No specific language requirements
Розташування
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (11)

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Tæknimaður á Akureyri
Coca-Cola á Íslandi

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir

Starfsfólk óskast á Grundartanga
HRT þjónusta ehf.

Starfsmaður á verkstæði SIXT í Keflavík | Garage Employee at SIXT Keflavík
Bílaleigan Berg - Sixt

Senior Mechanic - Campervan Workshop Supervisor
Indie Campers

Starf í tæknideild SS á Hvolsvelli
SS - Sláturfélag Suðurlands

Meiraprófsbílstjóri
S.S. verktak ehf