Matfugl
Matfugl
Matfugl

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli

Matfugl óskar eftir að ráða rafvirkja og eða vélvirkja í fjölbreytt og krefjandi starf hjá stóru og rótgrónu framleiðslufyrirtæki. Hér er um að ræða mikilvægt hlutverk í daglegum rekstri þar sem reynsla, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum skipta miklu máli.

Menntun í rafvirkjun eða sambærileg menntun er skilyrði.

Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Matfugl er leiðandi matvælaframleiðandi á íslenskum markaði sem sérhæfir sig í afurðum unnum úr kjúklingakjöti. Hjá fyrirtækinu starfa um 180 manns.

Matfugl er dótturfélag Langasjávar ehf. sem er móðurfélag nokkurra fyrirtækja í framleiðslu og dreifingu á matvælum ásamt útleigu og þróun atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Langisjór veitir þjónustu á sviði fjármála, mannauðsmála, markaðsmála, upplýsingatæknimála og viðskiptaþróunar fyrir öll dótturfélögin.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á rekstri og viðhaldi, þar með talið stillingum og viðgerðum á framleiðslu- og pökkunarvélum og öðrum tækjum.
  • Uppsetning viðhaldsáætlunar og umsjón með henni
  • Umsjón með framþróun tæknibúnaðar og húsnæðis
  • Rekstur öryggiskerfa og öryggisbúnaðar, ásamt setu í öryggisnefnd
  • Annast önnur verkefni sem rafvirkja kunna að vera falin af yfirmönnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafvirkjun eða sambærileg menntun skilyrði
  • Reynsla af iðntölvum, sjálfvirkni og upplýsingatækni er kostur
  • Reynsla af uppsetningu og notkun á viðhaldsáætlunum er kostur
  • Góð þekking á Windows umhverfi og notendabúnaði er kostur
  • Þekking á kælibúnaði er kostur
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Реклама створена 23. September 2026
Кінцевий термін подання заявки6. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Völuteigur 2, 270 Mosfellsbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Незалежність
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи