

Starfsmaður í vöruhúsi Byko Kjalarvogi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í vöruhúsi BYKO Kjalarvogi. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
BYKO Kjalarvogur er með grófvöru, timbur, plötur og stál. Unnið er á stórum lyfturum og skotbómum.
Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Skipulagshæfni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Lyftarapróf, kostur
- Reynsla á skotbómulyftara, kostur
- Stundvísi
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta, kostur
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn afgreiðslu- og lagerstörf
- Móttaka og frágangur á vörum
- Almenn þjónusta til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi störf
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Jón Ægir Baldursson, rekstrarstjóri ([email protected]).












