
Gatula ehf.
Gatula er íslenskt tæknifyrirtæki sem þróar stafrænar lausnir til að einfalda daglegan rekstur fyrirtækja og tengja fólk við vörur og þjónustu. Meðal lausna okkar eru Gatula Connect, leitarvettvangur sem nýtir gervigreind, og Gatula Time, tímaskráningarkerfi fyrir fyrirtæki. Við leggjum áherslu á nýsköpun, einfaldleika og lausnir sem spara tíma og skapa raunverulegt virði.

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri
Gatula leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum sölufulltrúa til að kynna og selja stafrænar lausnir okkar til fyrirtækja á Íslandi. Þú hefur samband við nýja viðskiptavini, bókar fundi, kynnir lausnir og fylgir sölutækifærum eftir til samnings. Við leitum að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og drifkraft. Reynsla af sölu til fyrirtækja er kostur.
Í boði er söluþóknun sem nemur hlutfalli af eigin sölu, samkvæmt nánara samkomulagi. Sá sem sýnir góðan árangur og leiðtogahæfni hefur möguleika á að taka við stöðu sölustjóra og leiða uppbyggingu söluteymis Gatula.
Sendu okkur ferilskrá og stutta kynningu á þér og reynslu þinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leita að nýjum viðskiptavinum og hafa frumkvæði að samskiptum við fyrirtæki.
- Bóka og sækja sölufundi, greina þarfir viðskiptavina og kynna lausnir Gatula.
- Gera tilboð, fylgja þeim eftir og ganga frá samningum.
- Byggja upp og viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
- Halda utan um sölutækifæri, skrá samskipti og vinna að settum sölumarkmiðum.
- Taka þátt í að þróa söluferla og móta sölustarf Gatula með stjórnendum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
- Reynsla af sölustörfum, sérstaklega sölu til fyrirtækja, er kostur.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust.
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri.
- Skipulögð vinnubrögð og góð eftirfylgni.
- Áhugi á tækni og hæfni til að kynna stafrænar lausnir á skýran hátt.
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur, en söluhæfni og reynsla vega þyngra en formleg menntun.
Fríðindi í starfi
- Söluþóknun sem tengist beint eigin sölu og árangri.
- Tækifæri til að vaxa í starfi og taka við stöðu sölustjóra.
- Sjálfstæði í starfi og tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu sölustarfs.
- Náið samstarf við stofnendur og stjórnendur Gatula.
Реклама створена 12. October 2026
Кінцевий термін подання заявки23. November 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Тип роботи
Навички
Загальні знання комп’ютераПроактивнийЛюдські стосункиВодійські праваКонтрактиТелефонний зв''язокСпілкування електронною поштоюНезалежністьПлануванняОбслуговування клієнтів
Підходить для
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Hársnyrtir sölustarf - Only Icelandic speaking
ATC

Söluráðgjafi Vatn og veitna, Selfossi
Vatn & veitur

Helgar og aukavinna í Curvy & Stout❤️
Curvy verslun

Chief Executive Officer
Hopp

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Útstillingahönnuður H&M
H&M

Lífeyris og tryggingaráðgjafi
Tryggingamiðlun Íslands

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsfólk í verslun - Helgarstarf - Selfoss
ILVA ehf

Sölustjóri fagaðila
Byko

Söluráðgjafi véladeildar
Samhentir

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR