Vatn & veitur
Vatn & veitur
Vatn & veitur

Söluráðgjafi Vatn og veitna á Selfossi

Söluráðgjafi óskast í Vatn og veitur, Selfossi

Vatn & veitur leitar að framsæknum og jákvæðum einstaklingi til starfa í verslun sína á Selfossi. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf hjá ört vaxandi fyrirtæki með jákvæðu og samheldu starfsfólki.

Vatn og veitur er eitt fyrirtækja innan Fagkaupa. Fagkaup á og rekur einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, S. Guðjónsson, KH-vinnuföt, Fossberg, Hagblikk, Varma og vélaverk, Ísleif, og Áltak. Fagkaup á einnig 70% hlut í DS lausnum.
Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 starfsmenn í Reykjavík, Kópavogi, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og Akureyri.

Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.

Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa.
Lögð er áhersla á góðan starfsanda og góðan aðbúnað starfsfólks. Starfsþróun og tækifæri til vaxtar þar sem fræðsla til starfsfólks er lykilþáttur í að auka þekkingu starfsfólks og efla í daglegum störfum.

Frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.vatnogveitur.is og einnig á www.fagkaup.is

Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 11.apríl.

Við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð aldri, kyni og uppruna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru þessi: 

  • Samskipti við viðskiptavini útibús
  • Gerð sölutilboða til pípulagnaverktaka
  • Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf til þeirra
  • Almenn sölustörf 
  • Tiltekt og áfylling í verslun 
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum og/eða pípulagningum
  • Sveinspróf í pípulögnum er kostur
  • Þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Almenn tölvukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur hádegsimatur. 
  • Líkamsræktarstyrkur.
  • Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta.

Að auki bjóðum við: 

  • Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
  • Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
  • Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu 
  • Afsláttarkjör af vörum félagsins 
  • Sveigjanlegt starfsumhverfi 
  • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi 
Реклама створена 13. April 2026
Кінцевий термін подання заявки21. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Austurvegur 69, 800 Selfoss
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.СантехнікPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Ділові відносини
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)