
Vörustjóri - lækningatæki
Fastus óskar eftir að ráða kraftmikinn og öflugan einstakling í starf við sölu og ráðgjöf á tækjabúnaði fyrir heilbrigðisgeirann með áherslu á lækningatæki. Um er að ræða fjölbreytt verkefni starf en verkefnin snúa að samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk og innleiðingu og kynningu á lausnum sem stuðla að betri meðferð og bættri þjónustu.
Leitað er að aðila með metnað til að byggja upp traust viðskiptasambönd og áhuga á því að vinna með hágæðavörum frá leiðandi framleiðendum. Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala á lækningatækjum
- Þjálfun og innleiðing lausna til viðskiptavina
- Greina og sækja ný tækifæri á ört vaxandi markaði
- Undirbúningur og framkvæmd útboða
- Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, birgja og aðra hagaðila
- Kynningar og ráðstefnur innanlands og erlendis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. hjúkrunarfræði, heilbrigðisverkfræði eða önnur heilbrigðismenntun
- Þekking og/eða reynsla af lækninga- eða hjúkrunarvörum er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Hjá Fastus starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fagfólks þar sem lausnamiðað hugarfar, þverfaglegt samstarf og frumkvæði eru metin mikils. Mikilvægt er að starfsfólk geti lagað sig að síbreytilegu umhverfi. Innan félagsins starfar kraftmikið starfsmannafélag sem stuðlar að góðri liðsheild og jákvæðum starfsanda.
Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Ісландська
Англійська










