Dagar hf.
Dagar hf.
Dagar hf.

Söluráðgjafi í fasteignaþjónustu og viðhaldsverkefnum

Dagar leita að kraftmiklum og þjónustulunduðum söluráðgjafa.

Starfið felst í sölu á þjónustu tengdri fasteignaumsjón, viðhaldsræstingum og sérverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Leitað er að reynslumiklum einstaklingi með góða innsýn í atvinnulífið, sterkan rekstrarskilning og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina og byggja upp traust og langtíma viðskiptasambönd.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala á þjónustu á sviði fasteignaumsjónar, viðhalds og sérverkefna
  • Þróun og stækkun viðskipta við núverandi viðskiptavini með áherslu á virðisaukandi lausnir
  • Uppbygging og þróun langtímasamstarfs við viðskiptavini
  • Regluleg samskipti og heimsóknir til lykilviðskiptavina
  • Ábyrgð á tilboðsgerð og eftirfylgni
  • Greining og mótun nýrra viðskiptatækifæra
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstakling sem:

  • Hefur reynslu af því byggja upp, þróa og viðhalda  viðskiptasamböndum
  • Hefur reynslu af sölu og ráðgjöf á þjónustu við fyrirtæki, kostur ef hún er á sviði fasteigna, viðhalds og byggingariðnaðar
  • Er sjálfstæður og drífandi
  • Hefur metnað til að ná árangri og byggja upp traust og langtímasamstarf við viðskiptavini.

Kostur ef viðkomandi hefur:

  • Iðnmenntun eins og smíði, rafvirkjun eða annað
  • Þekkingu á framkvæmdum og fasteignamarkaði
  • Reynsla af þjónustusölu B2B
Реклама створена 6. May 2026
Кінцевий термін подання заявки20. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Lyngás 17, 210 Garðabær
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи