
FUNDARBÓKANIR Á FRÁBÆRUM VINNUSTAÐ
Við leitum að tveimur öflugum sérfræðingum í fundabókun og samskiptum við viðskiptavini
Virt og alþjóðlega starfandi fyrirtæki á sviði fjárfestinga- og sparnaðarlausna leitar að tveimur reynslumiklum og metnaðarfullum einstaklingum til að sinna samskiptum við væntanlega viðskiptavini og bóka fundi fyrir sérhæft ráðgjafateymi okkar.
Við leitum að einstaklingum sem kunna listina að opna samtöl, vekja áhuga og byggja upp traust með fagmennsku og sjálfstrausti. Starfið hentar sérstaklega þeim sem hafa reynslu af „cold calling“, símsölu eða fundabókunum og kunna að ná athygli fólks strax í upphafi samtals.
Starfssvið
- Samskipti við væntanlega viðskiptavini
- „Cold calling“ og fundabókanir
- Bókun funda fyrir reynslumikla ráðgjafa í eðalmálmum
- Kynning á fjárfestinga- og sparnaðarlausnum sem byggja á öryggi, stöðugleika og langtímaverðmæti
- Að tryggja faglega og jákvæða upplifun viðskiptavina
Við bjóðum
- 60% starf
- Vinnutíma frá 09:00–14:00 mánudaga til fimmtudaga og 09:00–12:00 á föstudögum
- Föst mánaðarlaun ásamt árangurstengdum bónusum
- Faglegt og alþjóðlegt vinnuumhverfi
- Langtímatækifæri innan vaxandi fyrirtækis
- Fræðslu og þjálfun um eðalmálma og fjárhagslegt öryggi fyrir viðskiptavini
Við leitum að einstaklingum sem hafa
- Að lágmarki 5 ára reynslu af símsölu, fundabókun eða viðskiptaþróun
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstraust, fagmennsku og drifkraft
- Getu til að skapa traust og byggja upp langtímasambönd
- Metnað til að ná framúrskarandi árangri
Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Skrifstofur okkar eru að Ármúla 13, 4.hæð, 108 Reykjavík.
Gullmarkaðurinn starfar samkvæmt stöðlum Alþjóða gullráðsins (World Gold Council) við sölu á eðalmálmum og er meðal annars einkaumboðsaðili fyrir eitt þekktasta gullsparnaðarfyrirtæki Þýskalands, margverðlaunað fyrirtæki með starfsemi um allan heim.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir einstaklinga sem vilja starfa með öflugum lausnum sem stuðla að fjárhagslegu öryggi, stöðugleika og langtímaverðmætasköpun fyrir viðskiptavini.
Ісландська
Англійська










