Vopnafjarðarhreppur
Vopnafjarðarhreppur

Skrifstofustjóri

Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir kröftugum skrifstofustjóra sem vill hafa áhrif á rekstur og stefnu metnaðarfulls sveitarfélags.

Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjármálum sveitarfélagsins. Skrifstofustjóri starfar í umboði sveitarstjóra og annast framkvæmd aðgerða í samræmi við samþykktir, lög og reglur, stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins hverju sinni. Skrifstofustjóri hefur umsjón með starfsemi skrifstofu sveitarfélagsins og fjármálum. Undir skrifstofustjóra heyra jafnframt öll verkefni á sviði atvinnu- og menningarmála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón á fjármálastjórn sveitarfélagsins
  • Gerð áætlana framkvæmd, þeirra og úrvinnsla, eftirfylgni og kostnaðareftirlit í samráði við sveitarstjóra
  • Vinnur að atvinnutengdum verkefnum
  • Ársreikningar og uppgjör
  • Hefur eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða
  • Lausafjárstýring og samskipti við lánastofnanir
  • Innleiðing og eftirfylgni með innra eftirliti
  • Þátttaka í stefnumótun og þróun stjórnsýslu
  • Kynningarmál og umsjón með vefsíðu sveitarfélagsins
  • Starfsmaður í menningar- og atvinnumálanefnd
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Fagleg þekking og reynsla af fjármálum og fjármálastjórnun
  • Reynsla af verkefnastjórnun, stefnumótun og innleiðingu og eftirfylgni breytinga
  • Þekking og/eða reynsla af stjórnsýslu er kostur
  • Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og drifkraftur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni
Реклама створена 23. October 2026
Кінцевий термін подання заявки10. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Hamrahlíð 15, 690 Vopnafjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи