Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar
Leikskólinn Hulduheimar

Sérkennslustjóri í leikskólann Hulduheima Selfossi

Leikskólinn Hulduheimar auglýsir eftir sérkennslustjóra frá og með 6. ágúst 2026. Um er að ræða 80-100% stöðu

Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem er fær um að taka að sér umsjón með sérkennslu, stjórnunarlega ábyrgð og þátttöku í stjórnunarteymi.

Sérkennslustjóri starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitafélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.  

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu Árborgar.  

  • Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.   

  • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu.  

  • Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni.  

  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna stuðning, fræðslu og ráðgjöf.  

  • Tekur þátt í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfsfólki.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í leikskólakennarafræðum  

  • Reynsla af sérkennslu í leikskóla skilyrði 

  • Reynsla af starfi sérkennslustjóra æskileg 

  • Jákvæðni, frumkvæði, áhugasemi og góður samstarfsvilji 

  • Sjáfstæð og skipulögð vinnubrögð 

  • Góð færni í mannlegum samskiptum.  

  • Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum 

  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður  

  • Góð íslenskukunnátta 

  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti 

Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar 

  • Frítt fæði 

Реклама створена 27. May 2026
Кінцевий термін подання заявки8. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Erlurimi 1, 800 Selfoss
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.Планування
Професії
Мітки роботи