Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Rafvirkjar og vélvirkjar / Electricians and Mechanics

Alcoa Fjarðaál býður iðnaðarmönnum (rafvirkjum og vélvirkjum) fjölbreytt starfstækifæri í dagvinnu eða vaktavinnu. Fyrirtækið getur einnig boðið nokkrum iðnnemum námssamning og starfsþjálfun.

Í hátæknivæddu álveri Alcoa Fjarðaáls vinnur mjög fjölhæfur og öflugur hópur iðnaðarmanna að því að tryggja áreiðanleika búnaðar með bestu viðhaldskerfum sem völ er á. Sérhæft teymi greinir ástand búnaðar, fjögur svæðisbundin teymi sinna skipulögðu viðhaldi í dagvinnu og miðlæg viðhaldsvakt bregst við bilunum allan sólarhringinn. Iðnaðarmenn hjá Fjarðaáli vinna jafnframt mjög náið með framleiðsluteymum, tækniteymum og sérfræðingum í áreiðanleika og viðhaldi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verksvið eða meginverkefni starfsins

  • Fylgja öryggisstöðlum við alla vinnu, hjálpa öðrum að fylgja öryggisstöðlum og stöðva vinnu ef hún er ekki örugg.

  • Vinna skipulögð og óskipulögð viðhaldsverk sem úthlutuð eru af leiðtoga viðhalds.

  • Tekur að sér aukahlutverk í kringum rekstur viðhaldsteymis sem hann gegnir í styttri eða lengri tíma.

Ábyrgð í starfi

Iðnaðarmaður starfar í umboði leiðtoga viðhalds. Meginábyrgð iðnaðarmanns er framkvæmd viðhaldsverka á öruggan og vandaðan hátt.

Menntunar- og hæfniskröfur

Grunnkröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Krafist er sveinsprófs eða hærri menntunar.

Reynsla sem krafist er

Góð starfsreynsla á vinnumarkaði. Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur.

Fríðindi í starfi

Af hverju Alcoa Fjarðaál?

  • Tækifæri til að vinna í einu tæknilega fullkomnasta álveri í heiminum

  • Góð laun og fríðindi

  • Mikil tækifæri til að þróa hæfileika þína og vaxa í starfi

  • Vingjarnlegt og stuðningsríkt vinnuumhverfi

  • Fríar rútuferðir til og frá vinnu

  • Frábært mötuneyti

  • Velferðarþjónusta

Реклама створена 20. October 2025
Кінцевий термін подання заявки1. December 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.ЕлектрикPathCreated with Sketch.Промислова механіка
Професії
Мітки роботи