

Pikkoló leitar að skapandi samfélagsmiðlafulltrúa!
Pikkoló leitar að hugmyndaríkum og drífandi einstaklingi með áhuga á að taka þátt í að breyta leiknum á matvörumarkaði og hjálpa fólki að nálgast mat- og dagvörur í nærumhverfi sínu með snjallari og umhverfisvænni hætti.
Um er að ræða hlutastarf við efnisgerð og umsjón samfélagsmiðla. Starfshlutfall og vinnutími eru eftir samkomulagi.
Hvað er Pikkoló?
Pikkoló er spennandi nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun á sjálfbæru snjalldreifikerfi fyrir matvöruverslanir á netinu. Við tengjum verslanir og framleiðendur við kældar sjálfsafgreiðslustöðvar í nærumhverfi fólks. Á markaðstorgi Pikkoló má jafnframt finna fjölbreytt úrval af ferskum og spennandi vörum frá samstarfsaðilum okkar.
Hlutverk þitt hjá Pikkoló
Hlutverk þitt snýst fyrst og fremst um að skapa áhugavert efni og halda utan um samfélagsmiðla Pikkoló. Þú kemur með hugmyndir, tekur myndir og myndbönd og miðlar vörum, þjónustu og sögum samstarfsaðila okkar á skemmtilegan og skýran hátt.
Hér er tækifæri til að vaxa í starfi og vera hluti af frábæru teymi sem vinnur að uppbyggingu á einu ferskasta nýsköpunarfyrirtæki landsins!
Umsóknarfrestur er til 25. október nk.
-
Hugmyndavinna og skipulagning efnis fyrir samfélagsmiðla.
-
Myndataka, upptökur og klipping stuttra myndbanda.
-
Textagerð og birting á Instagram, Facebook og TikTok.
-
Kynning á vörum, samstarfsaðilum og Pikkoló-stöðvum.
-
Eftirfylgni með árangri efnis og þátttaka í þróun markaðsstarfs.
-
Góð þekking á samfélagsmiðlum og tilfinning fyrir því hvað vekur áhuga.
-
Færni í ljósmyndun, myndbandagerð og klippingu.
-
Gott vald á íslensku og færni í textagerð.
-
Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Reynsla af sambærilegum verkefnum er æskileg.
-
Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
Ісландська
Англійська






