Lauf Cycles hf.
Lauf Cycles hf.
Lauf Cycles hf.

Markaðssérfræðingur

Samfélagsmiðlar, efnissköpun & viðburðir

Við hjá Lauf Cycles leitum að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi til að ganga til liðs við markaðsteymið okkar. Við leitum að manneskju sem hefur brennandi áhuga á samfélagsmiðlum og efnissköpun en er jafnframt tilbúin að taka virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburða Lauf og The Rift, bæði á Íslandi og erlendis.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er náið með markaðsteymi Lauf í að auka sýnileika og styrkja Lauf sem alþjóðlegt vörumerki.


Meira um starfið

Stór hluti starfsins snýst um að halda utan um samfélagsmiðla Lauf Cycles og The Rift. Þar á meðal að skipuleggja, framleiða og birta efni og halda miðlunum lifandi í samstarfi við markaðsteymi. Starfið felur einnig í sér skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum Lauf og The Rift. Það getur verið allt frá smærri viðburðum eða vörukynningum, yfir í stærri sýningar og alþjóðlega hjólaviðburði.

Þannig krefst starfið m.a. kunnáttu á upptökubúnað og klippiforrit, skilning á þeim trendum sem eru í gangi og að vera með skapandi hugsun í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú munt meðal annars:

  • Taka upp, klippa og framleiða myndbönd fyrir Meta, TikTok, YouTube og aðra miðla.
  • Skipuleggja og birta efni á öllum samfélagsmiðlum Lauf og The Rift.
  • Taka ljósmyndir og myndefni á viðburðum.
  • Sinna samskiptum við samfélag Lauf og The Rift á samfélagsmiðlum.
  • Vinna með íþróttafólki, áhrifavöldum og samstarfsaðilum Lauf í gegnum samfélagsmiðla.
  • Taka þátt í skipulagi og framkvæmd viðburða Lauf hérlendis sem og í Bandaríkjunum og Evrópu.
  • Vera hluti af kjarnateyminu á bak við The Rift, sem er ein af stærstu malarhjólakeppnum í heimi.
  • Ferðast með Lauf á valda viðburði í Bandaríkjunum og Evrópu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Reynsla af stjórnun samfélagsmiðla, klippingu, upptöku og útfærslu á efni.
  • Færni í að vinna sjálfstætt og skapandi hugsun.
  • Skipulagsfærni og sveigjanleiki er mikill kostur.
  • Sérlega góð enskukunnátta.
  • Reynsla af viðburðarhaldi er kostur, en ekki skilyrði.
Реклама створена 22. September 2026
Кінцевий термін подання заявки6. October 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Рідна мова
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Grandagarður 1B, 101 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.БрендингPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Інтернет-маркетингPathCreated with Sketch.РедакторPathCreated with Sketch.Спілкування електронною поштоюPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.Робота під тискомPathCreated with Sketch.Організація заходівPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи