Grunnskóli Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Reyðarfjarðar og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Reyðarfjarðar og Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar óska eftir að ráða náms- og starfsráðgjafa við skólana í 100% starf.

Í skólunum eru um 300 börn í 1. – 10. bekk. Nánari upplýsingar um skólana er að finna á heimasíðum þeirra, www.grunnrey.is og www.fask.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju. 
  • Persónulegur og félagslegur stuðningur við nemendur þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á eigin áhugamálum og hæfileikum og setja sér raunhæf markmið.
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi.
  • Veita nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa réttindi til að starfa við náms- og starfsráðgjöf.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum.
Реклама створена 27. May 2026
Кінцевий термін подання заявки10. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Heiðarvegur 14A, 730 Reyðarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи