Lækning
Lækning

Lækning - móttökuritari

Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum og góðu skipulagi? Við hjá Lækningu leitum að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmanni í okkar frábæra teymi.

Sem hluti af móttökuteyminu ert þú gjarnan fyrsta snerting viðskiptavina við þjónustuna okkar. Þú tekur á móti gestum af fagmennsku og hlýju, svarar fyrirspurnum í síma og á staðnum og tryggir að móttakan gangi hnökralaust fyrir sig. Starfið felur jafnframt í sér ýmis almenn skrifstofustörf og önnur verkefni sem styðja við vandaða og faglega þjónustu okkar.

Ert þú rétta manneskjan?

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Nýtur þess að skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini
  • Er skipulagður, sjálfstæður og getur unnið undir álagi
  • Hefur góða almenna tölvukunnáttu og góða færni í íslensku og ensku

Starfið:

Um framtíðarstarf er að ræða í u.þ.b. 80% starfshlutfalli með möguleika á frekari afleysingum eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí.

Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og gott vinnumhverfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Lækningar, í síma 590-9200 og á [email protected]

Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Við bjóðum upp á nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur og fullkomnar skurðstofur í faglegu og vinalegu umhverfi.

Реклама створена 27. March 2026
Кінцевий термін подання заявки13. April 2026
Мовні вимоги
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
Розташування
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи