Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Bókun og innheimta

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að sinna bókun og innheimtu á fjármálasviði. Í boði eru fjölbreytt og krefjandi verkefni á áhugaverðum og spennandi bílamarkaði.

Askja, Dekkjahöllin, Landfari og Bílaumboðið Una eru dótturfélög Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllinni í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Þetta er einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í kraftmiklu, alþjóðlegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skráning reikninga
  • Afstemmingar á viðskiptavina- og lánadrottnareikningum og banka
  • Dagleg sjóðsuppgjör
  • Aðstoð við mánaðarlegt uppgjör
  • Stuðningur við önnur störf á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi  
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi

Af hverju að vinna með okkur?

  • Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
  • Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi

Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis

Реклама створена 1. April 2026
Кінцевий термін подання заявки15. April 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи