Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu

Við hjá Wise leitum að öflugum og þjónustulunduðum kerfisstjóra í notenda- og útstöðvaþjónustu.

Starfið snýst um að veita viðskiptavinum Wise daglega upplýsingatækniþjónustu, aðstoða notendur og leysa fjölbreytt tæknileg vandamál. Við bjóðum upp á góða þjálfun og leitum að einstaklingi sem hefur góðan tæknilegan grunn, er lausnamiðaður, hefur áhuga á að læra og þróast í starfi.

Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur áhuga á upplýsingatækni, kann að meta fjölbreytt verkefni og vill vinna í lifandi umhverfi þar sem samskipti við fólk og úrlausn vandamála eru stór hluti starfsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, úrvinnsla og eftirfylgni þjónustubeiðna frá viðskiptavinum Wise 
  • Tæknileg aðstoð og þjónusta við notendur 
  • Bilanagreining og úrlausn vandamála í hugbúnaði og vélbúnaði 
  • Uppsetning, þjónusta og viðhald á tölvum, útstöðvum og tengdum búnaði 
  • Aðstoð við notendur í Windows og Microsoft 365 
  • Fjaraðstoð og úrlausn tæknilegra vandamála hjá viðskiptavinum 
  • Samstarf við aðra sérfræðinga innan Wise við úrlausn flóknari mála 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun frá NTV eða sambærileg tæknimenntun 
  • Góður almennur skilningur á tölvum, netkerfum og upplýsingatækni 
  • Þekking á Windows og Microsoft 365 
  • Reynsla af notendaþjónustu er kostur 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 
Реклама створена 26. October 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи