Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna

Vertu með frá upphafi og taktu þátt í að móta nýja þjónustu sem skiptir börn og fjölskyldur þeirra máli.

Barnaspítali Hringsins leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu nýs Heimaspítala barna. Um er að ræða spennandi tækifæri til að verða hluti af teymi sem vinnur að þróun nýrrar og mikilvægrar þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Starfið hentar hjúkrunarfræðingi sem hefur brennandi áhuga á barnahjúkrun, býr yfir sjálfstæðum vinnubrögðum og vill hafa áhrif á uppbyggingu og þróun þessarar nýju þjónustu innan Barnaspítala Hringsins.

Í Heimaspítala barna er sérhæfð spítalaþjónusta færð nær fjölskyldunum og veitt í heimahúsi. Markmiðið er að skapa börnum öruggari og betri upplifun af meðferð og draga úr þörf fyrir innlagnir þegar það er mögulegt.

Af hverju að velja Heimaspítala barna?

  • Einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu Heimaspítala barna frá upphafi

  • Fjölbreytt og krefjandi starf þar sem fagmennska, sjálfstæði og frumkvæði fá að njóta sín

  • Náin samvinna við börn, fjölskyldur þeirra og þverfaglegt teymi sérfræðinga

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þjónustu sem bætir lífsgæði barna og fjölskyldna

Heimaspítalinn hefur aðsetur á göngudeild barna 20E.

Starfið er laust frá 1. desember 2026. Um er að ræða 20-50% starfshlutfall. Unnið er á vöktum alla daga ársins kl. 08:00-16:00 og 15:00-23:00.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita sérhæfða hjúkrun barna í heimahúsi
  • Ráðgjöf, fræðsla og stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
  • Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Þátttaka í þróun, uppbyggingu og eflingu Heimaspítala Barna
  • Taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast starfsemi og þróun þjónustunnar eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af hjúkrun barna
  • Búa yfir framúrskarandi samskiptafærni og jákvæðu viðhorfi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og vera lausnarmiðaður í starfi
  • Gilt ökuskírteini
  • Hafa áhuga á að taka þátt í breytingum, nýsköpun og þróun þjónustu
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Реклама створена 15. October 2026
Кінцевий термін подання заявки9. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (32)
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur eða lífeindafræðingur við hjartaómun á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í bæklununarskurðlækningum barna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali