

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Við leitum eftir kraftmiklum leiðtoga til að leiða og efla starfsemi dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækna og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Á deildinni starfa samhent teymi sem sinna þjónustu við sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Mikill vöxtur er í nýgreiningum krabbameina og að unnið er að alþjóðlegri vottun þjónustunnar. Hjúkrunardeildarstjóri mun taka virkan þátt í umbótum tengdum þessum verkefnum.
Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Hjúkrunardeildarstjóri ber þríþætta ábyrgð þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður starfsfólks á deildinni sem telur um 30 starfsmenn, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildarinnar í samstarfi við yfirlækni blóðlækninga, krabbameinslækninga og geislameðferðar.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur krabbameinsþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi, gæðum og þróun starfseminnar
- Starfsmannaábyrgð og dagleg stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri deildarinnar
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi deildarinnar
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan þjónustunnar og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri ásamt stýringu mannauðs er kostur
- Leiðtogahæfni, frumkvæði, áhugi og metnaður til að leiða breytingar og umbætur
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
- Góð íslenskukunnátta
Ісландська










































