Hjúkrunarfræðingar til starfa á A2 Fossvogi
Við viljum fjölga í okkar góða teymi á bráðalyflækningadeild og óskum eftir öflugum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á bráðalyflækningadeild A2 í Fossvogi. Deildin er 19 rúma lyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og markvisst unnið að umbótum og framþróun. Hópurinn er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Við bjóðum jafnt velkomna reynslumikla sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfið er vaktavinna sem hefur marga kosti og er starfshlutfall samkomulag og ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í