
Waterfront ehf
Gæludýr.is AKUREYRI
Við hjá Gæludýr.is á Akureyri leitum að hressum og öflugum starfsmanni.
Við þurfum einn aðila sem getur:
- Unnið hlutastarf í sumar á virkum dögum
- Unnið annan hvern laugardag til framtíðar
- Verið sveigjanlegur og tekið aukavaktir á virkum dögum næsta vetur ef upp koma veikindi eða annað
Hvað felst í starfinu?
- Afgreiðsla og ráðgjöf við viðskiptavini
- Áfyllingar af lager
- Halda versluninni snyrtilegri
Starfið gæti hentað þér ef:
- Þú ert stundvís
- Þú sýnir frumkvæði
- Getur tekið vaktir á virkum dögum næsta vetur ef ,,lífið gerist" í versluninni.
- Þú sýnir jákvæðni og þjónustulund
- Ef þú ert að leita að hlutastarfi
- Sækist eftir fjölbreyttu starfi
- Vilt hreyfingu í starfinu
Starfið hentar ekki ef:
- Þú ert með bakveiki þar sem starfið getur verið líkamlega krefjandi
- Þú verður með þétta stundatöflu næsta vetur
Við lofum:
- Góðri fræðslu
- Skemmtilegu vinnuumhverfi með miklu gríni
- Fjölbreyttum vinnudegi
- Góðu samstarfsfólki sem styður þegar reynir á
Hjá Gæludýr.is vinnur hress hópur fólks sem á það sameiginlegt að vera miklir dýravinir.
Við erum að leita að samviskusömum, metnaðarfullum, stundvísum, jákvæðum, heiðarlegum og hressum dýravinum sem vilja slást í hópinn.
Athugið að vel unnin ferilskrá með mynd og öllum upplýsingum sem og reynslu og þekkingu á gæludýrum gerir góða umsókn betri.
Viðkomandi þarf að tala góða íslensku og geta hafið störf sem fyrst
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og ráðgjöf í verslun
- Þrif
- Almenn lagerstörf & áfylling í verslun
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum er kostur
- Íslenskukunnátta nauðsyn
- Frumkvæði
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
Реклама створена 21. April 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Розташування
Baldursnes 8, 603 Akureyri
Тип роботи
Навички
ПроактивнийПозитивністьРобота на складіСумліннийНезалежністьПунктуальність
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn

Öryggisvörður
Max Security

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Sumarstarf í Vík
Arion banki

Apótekarinn Vík - Sala og þjónusta
Apótekarinn

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Flügger Litir

Apótekarinn Vík - Umsjón útibús
Apótekarinn

Söluráðgjafi sérlausna - BYKO Akureyri
Byko

Afgreiðslu- og lagerstarf og útkeyrsla. Sumar eða framtíðarstarf.
Kraftar og Afl. Motul á Íslandi.

Lyfja Patreksfirði - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Sumarstarf í vöruhúsi - Byko Kjalarvogi
Byko

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli