Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn Vík - Sala og þjónusta

Viltu slást í hópinn í afgreiðslustarf í nýju lyfjaútibúi á Vík?

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í afgreiðslu í nýju apóteki okkar á Vík sem stendur til að opna á næstunni. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölum lyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í apóteki er kostur
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
  • Lágmarksaldur er 20 ára
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Verslunin verður opin virka daga frá kl. 10-17.

Starfshlufall 50 -70% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst

Nánari upplýsingar um starfið veita Fríður S. Þormar, mannauðs- og gæðastjóri [email protected] og Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 9. maí næstkomandi.

Um Apótekarann:

Apótekarinn er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, Lyfjaskömmtun Apótekarans og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.

Реклама створена 24. April 2026
Кінцевий термін подання заявки9. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Smiðjuvegur 7, 870
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи