Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Starfstengd íslenska | Care Assistant & Icelandic

Care Assistant Workshop and Icelandic 3 is specially designed for those who want to work in care but need a better foundation in Icelandic to be able to do the job effectively. 

The course starts 1. october but you need to sign up before 24th of September.

Objectives

The course consists of diverse learning modules aimed at strengthening participants' Icelandic language skills and providing the necessary knowledge and skills for care work.

  • Icelandic language studies with an emphasis on job related vocabulary used in care work.
  • Insight into work practices and culture in care work in Iceland.
  • Creative workshops focusing on the use of music, yoga/exercise, art activities, and using technology in care work.
  • Practical skills applicable in the job, such as correct body postures and procedures in care work.
  • On-the-job training, where students actively participate in care work for a total of 4 days.

We look forward to seeing you in the course.

Our goal is to help you improve your Icelandic language skills and get a variety of training that is useful in care work.

------------------

Umönnunarsmiðja og íslenska – stig 3 (A.2)

Hefur þú áhuga á að vinna við umönnun en vantar færni í íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!

Umönnunarsmiðja og íslenska 3 er sérstaklega hannað fyrir þá sem langar til að vinna við umönnun en þurfa betri grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan hátt.

Námskeiðið hefst 1. október en skráningarfrestur er til og með 24. september.

Markmið

Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þátttakenda og veita nauðsynlega þekkingu og færni í umönnunarstörfum.

  • Íslenskunám með áherslu á orðaforða í umönnunarstörfum.
  • Innsýn í starfshætti og menningu í umönnunarstörfum á Íslandi.
  • Skapandi vinnustofur þar sem lögð er áhersla á notkun tónlistar, heilsueflingar, listastarfs og notkun tækni í starfi.
  • Hagnýt færni sem nýtist í starfi, s.s. líkamsbeiting og verklag í umönnun.
  • Starfsþjálfun þar sem nemendur taka virkan þátt í starfi við umönnun, samtals 4 dagar.

Inntökuskilyrði

Nemendur þurfa að hafa lokið íslensku 2 eða vera með færni í íslensku í samræmi við það (stig A.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum).

Nemendur þurfa að taka stöðupróf hjá okkur áður en sótt er um námskeiðið. Stöðupróf er ókeypis hjá okkur á Höfðabakka 9 á virkum dögum frá kl. 8:00-14:30.

Kennslustaðir:

Kennt í Mími símenntun, Höfðbakka 9, 110 Reykjavík og starfsþjálfun á vinnustöðum sem eru í samstarfi við Mími.

Námsmat:

Verkefnavinna og virk þátttaka. Nauðsynlegt er að ná 80% mætingu til að ljúka námsbrautinni.

Kennslufyrirkomulag:

Alls 128 klukkustundir.

Kennt verður alla virka daga frá 9:00-14:30.

Kennt verður samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins auk íslensku á stigi 3 með áherslu á starfstengdan orðaforða.

 

Við hlökkum til að sjá þig á námskeiðinu.

Markmið okkar er að hjálpa þér að bæta íslenskukunnáttu þína og fá fjölbreytta þjálfun sem nýtist í umönnunarstörfum.

 

Починається
1. Oct 2024
Тип
На сайті
Поділитися
Надіслати повідомлення
Поділитися
Копіювати URL-адресу
Категорії