Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Samfélagstúlkun

Vilt þú starfa við samfélagstúlkun?

  • Frábært nám til að öðlast færni í túlkun á milli íslensku og erlends máls
  • Skráningarfrestur til 22. september

Um námið

Námið er ætlað þeim sem sinna eða hafa hug á að sinna starfi við samfélagstúlkun sem felst í því að miðla munnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins.

Nemendur læra um íslenskt samfélag og helstu stofnanir. Krufin eru álitamál og siðareglur túlka skoðaðar. Einnig fá nemendur þjálfun í glósutækni og túlkun á námskeiðinu. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðari af Menntamálastofnun. 

Uppbygging náms

Námið er kennt í staðnámi og fjarnámi. Í staðnámi er gerð krafa um fulla mætingu.

Staðlotur:

Föstudagur, 11. október, kl. 17:10 -20:50

Laugardagur, 12. október, kl. 9.00 - 12:30

Laugardagur, 12. október, kl. 13:00 - 16:30

Laugardagur, 2. nóvember, kl. 9.00 - 12:30

Laugardagur, 2. nóvember, kl. 13:00 - 16:30

Laugardagur, 16. nóvember, kl. 9.00 - 12:30

Námsþættir

  • Íslenskt samfélag
  • Helstu stofnanir
  • Siðfræði og álitamál
  • Fjölmenning
  • Aðstæður og öryggi
  • Undirbúningur
  • Umsýsla og þjónusta
  • Túlkunartækni

 

Починається
1. Oct 2024
Тип
В офісі / дистанційно
Поділитися
Надіслати повідомлення
Поділитися
Копіювати URL-адресу
Категорії