SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
SÍMEY - Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú

Nám í stuðningsfulltrúa- og leikskólaliðabrú er fyrir ófaglærða starfsmenn í leik- og grunnskólum.

Námið er samtals 66 einingar sem kenndar eru á fjórum önnum. Þátttakendum er boðið upp á raunfærnimat í upphafi náms, sem getur þá komið til styttingar á náminu.

Nemendur útskrifast sem leikskólaliðar og/eða stuðningsfulltrúar að námi loknu. Innihald námsins er félags-, sál- og uppeldisgreinar sem og sérgreinar á sviði kennslufræði.

 

Fyrirkomulag náms: Námið er byggt þannig að hver áfangi er kenndur í fjórar til fimm vikur í senn. Námið fram á netinu í vendikennslu. Athugið að mikilvægt er að mæta (á netinu) í fyrsta tíma hvers áfanga svo að námið gangi vel fyrir sig. Allir fyrirlestrar eru teknir upp fyrirfram og aðgengilegir námsmönnum í gegnum netið.

Námsmenn hafa aðgengi að kennara einu sinni í viku í hverjum áfanga á milli kl. 17:00 - 20:00 í gegnum netið. Þar geta nemendur fengið aðstoð og leiðsögn við gerð verkefna frá kennara. Þar fyrir utan er nemendum frjálst að nýta sér aðstöðuna í SÍMEY og hafa þar aðgengi að ráðgjöfum og verkefnastjórum.

Námsmat: Námsárangur er metinn með símati, þ.e. nemandi skilar inn verkefnum sem metin eru til einkunna og er einkunn gefin í tölustöfum. Hægt er að fá hluta áfanga metna í gegnum raunfærnimat og biðjum við þá sem þess óska að hafa samband við umsjónarmenn námsins, Helenu (helena@simey.is) eða Önnu Maríu (annamaria@simey.is).

 

Fög kennd á vorönn 2025 (birt með fyrirvara um breytingar):

  • Kynjafræði- Hefst 11. janúar kl. 10.. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 13. janúar til 10. febrúar.
  • Þroskasálfræði - Hefst 15. febrúar kl. 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 17. febrúar til 17. mars. 
  • Kennslustofan og nemandinn - Hefst 22. mars kl. 10. Aðgengi að kennara á mánudögum kl. 17:00 - 20:00 frá 24. mars til 22. apríl.

 

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú samanstendur af eftirtöldum fögum:

Fatlanir 2A05
Hegðun og atferlismótun 2A05
Leikur sem náms- og þroskaleið 2A05
Íslenskar barnabókmenntir 2C05
Skapandi starf 1A05
Samskipti og samstarf 1A05
Þroskasálfræði 3A05
Gagnrýnin hugsun og siðfræði 2A05
Upplýsingatækni 1A05

Kynjafræði 2A05
Skyndihjálp 2A01
Uppeldisfræði 2A05 og 3A05
Þroski og hreyfing 2A05
Kennslustofan og nemandinn 2A05

 

Verð: 47.000,- hver önn (með fyrirvara um breytingu á verðskrá fræðslusjóðs).

Починається
11. Jan 2025
Тип
Дистанційно
Поділитися
Надіслати повідомлення
Поділитися
Копіювати URL-адресу
Категорії