
Iðan fræðslusetur

Læsa, merkja, prófa
Lærðu aðferðir til að tryggja öryggi þitt og annarra með læsingum, merkingum og prófunum áður en vinna hefst.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa við vél- og rafbúnað eða í umhverfi þar sem hætta er á óvæntri ræsingu eða orkulosun við viðhald og viðgerðir.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum aðferðir til að koma í veg fyrir slysa¬hættu vegna óvæntrar ræsingar eða orkulosunar með því að nota staðlað öryggisferli; Læsa, merkja, prófa.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Hvað felst í ferlinu Læsa, merkja, prófa (Lockout, Tagout, Tryout – LOTO)
 - Aðferðir til að aftengja og læsa orkuuppsprettur á öruggan hátt
 - Rétta notkun persónulása og merkinga til að tryggja öryggi starfsfólks
 - Mikilvægi prófunar áður en vinna hefst til að ganga úr skugga um að öll orka sé örugglega aftengd
 - Gagnsemi aðferðarinnar við að draga úr slysum og bæta vinnuvernd
 
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta skipulagt, framkvæmt og fjarlægt læsingar sem tryggja öryggi starfsfólks
 - Geta notað persónulás á réttan hátt til að tryggja eigið öryggi
 - Skilja mikilvægi þess að framkvæma prófanir áður en vinna hefst
 - Þekkja helstu áhættuþætti sem tengjast orkulosun og óvæntri ræsingu
 
Aðrar upplýsingar:
- Engar sérstakar forkröfur eru gerðar.
 - Lengd og fyrirkomulag námskeiðs fer eftir samkomulagi
 
Починається
13. Nov 2025Тип
На сайтіПоділитися
Надіслати повідомлення 
Поділитися
Копіювати URL-адресу 
Категорії 
Більше від Iðan fræðslusetur 
Autodesk Revit Architecture grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturНа сайті15. Nov
Hagnýting gervigreindar í iðnaði
Iðan fræðsluseturНа сайті21. Nov
Listin að gera jólakokteil
Iðan fræðsluseturНа сайті12. Dec
Acrobat Pro og önnur samskiptatól í hönnun
Iðan fræðsluseturНа сайті12. Nov
Autodesk Inventor fyrir blikksmiði og stálsmiði
Iðan fræðsluseturНа сайті15. Oct