

Fjármál og rekstur
Á námskeiðinu er lögð er áhersla á arðsemi og val á mismunandi leiðum við ábyrga stjórnun fjármuna og stýringu verkefna. Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum aðferðum til að takast á við helstu verkefni sem koma við sögu í rekstri fyrirtækja og stofnana.
Námskeiðið skiptist í þrjá megin hluta.
1. Skipulag og stjórnun, kennari Einar Birkir Einarsson
2. Bókhald og ársreikninga, kennari Bjarni Frímann Karlsson
3. Fjármálastjórnun, kennari Jón Arnar Baldurs
Námskeiðinu er ætlað að veita góða innsýn inn í þessa þrjá lykilþætti rekstar. Námskeiðið er hugsað fyrir aðila sem hafa ekki endilega menntun á sviði viðskipta en eru að taka skref eða ábyrgð í þá átt. Námskeiðið nýtist einnig vel fyrir þá sem vilja kynna sér þennan vettvang og öðlast meiri skilning á fjármálum og rekstri.
Í fyrsta hluta verður farið yfir skipulag fyrirtækja, hvaða tegundir skipulags henti mismunandi ytri aðstæðum og hvað einkennir fyrirtæki á mismunandi aldursskeiði þeirra. Þá verður farið yfir greiningu og flokkun verkefna og hvernig mikilvægustu verkefnin eru forgangsröðuð og meðhöndluð. Einnig verður farið í stofnun verkefnahópa sem skila bestum árangri. Þá verður kenndur grunnurinn í Agile verkefnastjórnun með áherslu á Kanban og Scrum. Lögð er áhersla á virka þátttöku og gerðar verða hagnýtar æfingar til að leggja áherslu á mikilvægustu atriði við stýringu verkefna.
Í hluta tvö verður farið í grunnatriði við fyrirkomulag reikningshalds. Skýrður munurinn á rekstrarbókhaldi og fjárhagsbókhaldi. Í tengslum við rekstrarbókhaldið verður einkum fjallað um eðli og hegðun kostnaðar og verkbókhald. Einnig fjallað um hugtakið hagkvæmni. Hvað varðar fjárhagsbókhaldið þá verður lögð áhersla á lestur ársreikninga, uppbyggingu þeirra og innbyrðis samhengi. Einnig kynntar helstu aðferðir við greiningu þeirra, þ.e. „að lesa á milli línanna“ í ársreikningi.
Í síðasta hluta námskeiðsins er farið yfir stjórnun fjármála, fjármögnun og áætlanagerð hvort heldur fyrir verkefni eða fyrirtæki. Þá verður farið yfir helstu hugtök í kostnaðargreiningu, kennitölur rekstra, áhættumat og virðisgreiningu. Farið verður í mat á fjárfestingum, framlegð og vextir og aðferð núvirðingar beitt. Þá verður farið yfir helstu aðferðir og sjónarhorn við verðmat fyrirtækja. Unnin eru lítil verkefni til að kynna og þjálfa helstu hugtök og aðferðir og umræður tengdar við dagleg verkefni eða störf þátttakenda sem það kjósa.