
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Yfirverkstjóri á Hvammstanga
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Við leitum að einstaklingi í starf yfirverkstjóra á þjónustustöðinni á Hvammstanga. Þjónustusvæði þjónustustöðvarinnar nær frá Blönduós í austri að sunnanverði Holtavörðuheiði að vestanverðu, auk hálendisvega inn að Hveravöllum og að Arnarvatnsheiði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á rekstri og verkefnum þjónustustöðvarinnar og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framgang þeirra og kostnað
- Stjórnun starfsfólks þjónustustöðvar
- Eftirlit með færð á vegum, upplýsingagjöf og aðgerðastjórn í samvinnu við vaktstöð Vegagerðarinnar
- Samskipti og eftirlit með verktökum
- Leiðir öryggismál þjónustustöðvarinnar
- Umsjón með lagerhaldi og áhaldahúsi
- Sér um minni verðkannanir, áætlanagerð og uppgjör
Menntunar- og hæfniskröfur
- Marktæk reynsla af stjórnun skilyrði
- Meistarapróf í iðngrein eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Góð þekking á landsvæði þjónustusvæðis æskileg
- Stjórnendanám Stjórnendafræðslunnar eða sambærilegt æskilegt
- Mjög góð tölvufærni
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Útsjónarsemi og skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð öryggisvitund
Auglýsing birt25. nóvember 2025
Umsóknarfrestur8. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabraut 33, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Loftræsi- og lagnahönnun á Norðurlandi
EFLA hf

Framkvæmdastjóri
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Náttúruverndarstofnun

Umsjónarmaður fasteigna
Hólabrekkuskóli

Forstöðumaður – Nes listamiðstöð á Skagaströnd
Nes listamiðstöð ehf.

Teymisstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Leikskólastjóri
Sveitarfélagið Strandabyggð

Verkstjóri í uppsteypu
LNS Íslandi ehf.

Verkstjóri - Húsavík
Terra hf.

Verkstjóri framleiðslu DNG færavinda
Slippurinn Akureyri ehf

Verkstjóri óskast
Stálnaust ehf.

Verkstjóri vélsmiðju
Slippurinn Akureyri ehf.