Breiðablik
Breiðablik
Breiðablik

Yfirþjálfari yngri flokka

Knattspyrnudeild Breiðabliks auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi í stöðu yfirþjálfara yngri flokka félagsins.

Yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar leiðir faglegt starf félagsins í samráði við framkvæmdastjóra og deildarstjóra knattspyrnudeildar. Meginhlutverk yfirþjálfara er að fylgja eftir stefnu Breiðabliks um uppeldis- og afreksstarf í þjálfun knattspyrnu. Einnig skal yfirþjálfari vinna náið með þjálfurum félagsins og veita þeim aðhald og stuðning. Yfirþjálfari hefur umsjón með afreksstarfi

Breiðabliks í 4.-2. flokki og samvinnu milli meistaraflokka og yngri flokka í þeim efnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf og/eða mikil reynsla sem nýtist í starfi
  • UEFA A þjálfunargráða
  • Þekking og skilningur á starfsemi knattspyrnudeilda
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Drifkraftur og hæfni til að leiða verkefni og hópa
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 27. október nk.

Umsóknum ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal skilað til deildarstjóra á netfangið isleifur@breidablik.is eigi síðar en 27. október 2024.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Dalsmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar