
Heilsuvernd
Hjá Heilsuvernd og dótturfélögum starfar öflugt teymi sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum störfum á sviði heilbrigðisþjónustu. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Yfirmatreiðslumaður óskast til starfa
Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?
Heilsuvernd óskar eftir að ráða yfirmatreiðslumann til starfa. Ráðið er í stöðuna frá og með mars 2026.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri eldhússins
- Skipuleggur innkaup, verkefni og verkstýrir starfsfólki
- Skipuleggur vaktir starfsmanna og ber stjórnunarlega ábyrgð gagnvart starfsfólki
- Gæðaeftirlit í mötuneyti og ábyrgð á umgengni, umhirðu og þrifum eldhúss í samræmi við kröfur heilbrigðiseftirlitsins
- Þróar skilvirka vinnuferla innan eldhússins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í matreiðslu er skilyrði, viðbótarmenntun æskileg
- Reynsla í næringarfræði og gerð sérfæðis er æskileg
- Reynsla í hagkvæmum innkaupum, birgðastýringu og samskiptum við birgja
- Þekking á úrbeiningu og vinnslu
- Reynsla af stjórnun og teymisvinnu er nauðsynleg
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Auglýsing birt16. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (9)

Chef/Kitchen assistant
Reykjavik Bistro

Matreiðslunemi/aðstoð í eldhús óskast.
Fiskfélagið

Kokkur / Chef
Arnfinnur ehf.

Matreiðslumaður/Matartæknir - Chef Agent
NEWREST ICELAND ehf.

Yfirmaður mötuneytis í Krikaskóla
Krikaskóli

Matreiðsla á Þjórsársvæði
Landsvirkjun

Matreiðslumaður/Chef
Bastard Brew and Food

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Tres Locos

Matreiðslumaður | Chef
Black Sand Hotel