
Yfirmaður jarðvinnudeildar óskast til Eignabyggðar
Eignabyggð leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi til að leiða jarðvinnudeild félagsins. Viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar, skipulagningu verkefna, stjórnun starfsmanna og eftirfylgni með gæðum, kostnaði og tímaáætlunum.
Leitað er að lausnamiðuðum leiðtoga sem hefur góða þekkingu á jarðvinnu og framkvæmdum og getur haldið vel utan um fjölbreytt verkefni. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf hjá öflugu og vaxandi fyrirtæki.
-
Dagleg stjórnun og skipulagning jarðvinnudeildar
-
Verkstjórn og mannaforráð
-
Skipulagning mannafla, tækja og aðfanga
-
Gerð og eftirfylgni verk- og tímaáætlana
-
Kostnaðareftirlit og eftirfylgni með framvindu verkefna
-
Samskipti við verkkaupa, undirverktaka, birgja og aðra samstarfsaðila
-
Eftirlit með gæðum, öryggi og frágangi
-
Ábyrgð á góðri nýtingu og viðhaldi véla og tækja
-
Tilboðsgerð, magntökur og undirbúningur framkvæmda eftir þörfum
-
Þátttaka í áframhaldandi uppbyggingu og þróun deildarinnar
-
Reynsla af jarðvinnu, framkvæmdum eða sambærilegum verkefnum
-
Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum
-
Góð þekking á vinnuvélum, tækjum og framkvæmdum
-
Hæfni til að skipuleggja og stýra mörgum verkefnum samtímis
-
Góð samskipta- og leiðtogahæfni
-
Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun
-
Góð íslenskukunnátta
-
Almenn tölvukunnátta
-
Ökuréttindi
-
Menntun á sviði byggingariðnaðar, tæknifræði eða verkfræði er kostur en ekki skilyrði
-
Vinnuvélaréttindi og reynsla af tilboðsgerð eru kostur
-
Ábyrgðar- og áhrifamikið starf
-
Fjölbreytt og krefjandi verkefni
-
Góð vinnuaðstaða og öflugur tækjakostur
-
Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun jarðvinnudeildarinnar
-
Samkeppnishæf laun
-
Öflugt og gott starfsumhverfi
Enska
Íslenska




