

Yfirmaður Housekeeping / Housekeeping Manager
Við leitum að öflugum og skipulögðum einstaklingi í 100% starf sem yfirmaður Housekeeping á The Hill Hotel á Flúðum.
Um er að ræða ábyrgðarstöðu þar sem viðkomandi hefur yfirumsjón með daglegum rekstri Housekeeping-deildarinnar og ber ábyrgð á þrifum, gæðum og skipulagi deildarinnar.
Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður, lausnamiðaður og áreiðanlegur, hefur gott auga fyrir smáatriðum og hæfni til að skipuleggja og leiða teymi.
Starfshlutfall er 100% og vinnutími er eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Full ábyrgð á Housekeeping-deild
- Dagleg verkstjórn og skipulag þrifa
- Gerð og utanumhald vaktaplans
- Stjórnun og eftirfylgni með Housekeeping-teymi
- Gæðaeftirlit með herbergjum og sameiginlegum rýmum
- Pantanir og birgðahald á þrifavörum, líni og öðrum rekstrarvörum
- Skipulag djúpþrifa og reglubundinna verkefna
- Samstarf við móttöku og aðrar deildir hótelsins
-Tryggja að verklagi og hreinlætiskröfum sé fylgt
Hæfniskröfur
- Reynsla af Housekeeping, hótelrekstri eða sambærilegu starfi er æskileg
- Reynsla af verkstjórn eða stjórnun er kostur
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði, ábyrgð og frumkvæði í starfi
- Hæfni til að leiða og vinna vel með öðrum
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Reynsla mikilvæg
Enska










