
Yfirlandvörður á Suður- og Suðvesturlandi
Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar á Suður- og Suðvesturlandi með sérstaka áherslu á Friðland að Fjallabaki, Dyrhólaey og Þjórsárdal.Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir umdæmisstjóra á svæðinu. Um er að ræða vaktavinnu út á svæðum í tengslum við meginstarfsstöð á Hvolsvelli. Starfshlutfall er 100%.
-
Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn landvarða og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna
-
Annast þjálfun og móttöku landvarða
-
Sinnir almennri landvörslu eftir þörfum
-
Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu
-
Vinnur að öryggismálum
-
Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi á innviðum
-
Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði
-
Landvarðaréttindi
-
Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
-
Geta til að þróa hugmyndir og verklag
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
-
Færni í miðlun upplýsinga
-
Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
-
Almenn ökuréttindi
-
Reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur
-
Verkþekking er kostur
-
Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur
-
Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
Enska
Íslenska