Síminn
Síminn
Síminn

Vörustjóri einstaklingsmarkaðar

Síminn leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf vörustjóra einstaklingsmarkaðar sem mun vinna að því að greina markaðstækifæri, þróa nýjar vörur og þjónustur og tryggja að Síminn haldi áfram að vera leiðandi á fjarskiptamarkaði.
Vörustjóri einstaklingsmarkaðar hjá Símanum er hluti af teymi viðskiptaþróunar og vörustýringu Símans. Viðskiptaþróun og vörustýring gegnir lykilhlutverki í að þróa og innleiða lausnir sem sameina þarfir viðskiptavina og árangur Símans á einstaklingsmarkaði. Teymið ber ábyrgð á frammistöðu vöruframboðs, að hámarka virði þess á hverjum tíma auk þess að leita stöðugt að nýjum tækifærum.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa áhrif á þróun fjarskiptamarkaðarins til framtíðar. Hjá okkur muntu fá tækifæri til að vaxa í krefjandi og spennandi vinnuumhverfi, þar sem hugmyndir þínar og framlag skipta máli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina markaðstækifæri og neytendahegðun til að finna nýjar leiðir til vaxtar 
  • Þróa viðskiptagreiningar (e. Business case) fyrir nýjar vörur og þjónustur 
  • Móta stefnu og framtíðarsýn fyrir vöru- og þjónustuframboð í samstarfi við stjórnendur 
  • Fylgjast með samkeppni og nýsköpun á fjarskiptamarkaði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vöru- og viðskiptaþróun á neytendamarkaði
  • Þekking á markaðs-, viðskipta-, og fjármálagreiningum sem og þróun viðskiptalíkana  
  • Reynsla af kynningum og framsetningu gagna á einfaldan hátt 
  • Góð hæfni í notkun gagnagreiningatóla (Excel, PowerBi eða sambærilegt) 
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Hæfni til að greina tækifæri og samkeppni 
  • Áhugi á nýsköpun  
  • Gagnadrifinn hugsunarháttur 
  • Skapandi og lausnamiðað hugarfar 
  • Framúrskarandi samskiptafærni 
  • Hæfni til að byggja upp bæði innri og ytri samstörf 
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Auglýsing birt14. mars 2025
Umsóknarfrestur24. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Metnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar