
Ölgerðin
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að hluta fólginn í mannauði þeirra.
Við drögum að og höldum hæfasta starfsfólkinu með hvetjandi fyrirtækjamenningu án fordóma og með áherslu á jafna möguleika. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af skapandi og framsæknu fólki. Sjálfbærni er samofin menningu, við eyðum allri sóun og nýtum okkur stafræna tækni til umbóta sem skapar okkur samkeppnisforskot.
Við sinnum hverjum viðskiptavini og birgja eins og hann væri okkar eini og setjum aðeins þau vörumerki á markað sem eru, eða hafa möguleika á að vera, fremst í sínum flokki.
Við erum keppnis, gerum hlutina fyrr og betur en aðrir og leggjum metnað í að skapa eftirsóttasta vinnustað landsins.
Markmið Ölgerðarinnar er að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni
Ölgerðin óskar eftir framúrskarandi vörumerkjastjóra.
Starfið felur í sér stjórnun á þekktum innfluttum vörumerkjum. Við leitum að duglegri og jákvæðri manneskju með ástríðu fyrir sölu- og markaðsmálum.
Viðkomandi ber ábyrgð á sölu- og markaðsmálum á sínum vörumerkjum, gerð, sölu-, innkaupa- og rekstraráætlana ásamt því að viðhalda mikilvægum birgja og viðskiptasamböndum.
Við bjóðum krefjandi og áhugavert starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í viðskiptafræði, markaðsfræði eða sambærilegt.
- Hæfni til að vinna með tölur og greiningar.
- Þekking og reynsla af neytendamarkaði er mikill kostur.
- Reynsla af rekstri og/eða sölu- og markaðsmálum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í máli og riti.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði, jákvæðni og áreiðanleiki.
- Mjög góð tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 9. september nk.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar