Vöruhús ICEWEAR óskar eftir öflugu starfsfólki
Fjölbreytt og lifandi starf í vöruhúsi Icewear í Hafnafirði. Vinnutími frá 8.00-16.00
Helstu verkefni:
- Vörutýnsla fyrir verslanir
- Vörumóttaka
- Vöruáfyllingar
- Tiltekt
- Samskipti samstarfsfólk og viðskiptavini
- Útkeyrsla
Um ICEWEAR
Verslanir ICEWEAR selja útivistarvörur, fatnað og gjafavörur undir merkjum Icewear og Icemart ásamt fjölbreyttu úrvali af tegndum vörum.
Icewear rekur 26 verslanir víðsvegar um landið. Margar þeirra þeirra eru í Reykjavík en einnig eru verslanir í Vík í Mýrdal, Vestmannaeyjum, Þingvöllum, Akureyri, Húsavík og við Goðafoss. Vöruhúsið í Hafnafirði sinnir öllum þessum verslunum með vörudreifingu og þjónustu á ýmsa vegu.
ICEWEAR vinnur markvisst að því að vera góður vinnustaður þar sem lögð er áhersla á góðan starfsanda, gott vinnuumhverfi, jafnrétti og fjölbreytileika. Starfsfólk ICEWEAR tekur vel á móti nýju starfsfólki þar sem allir fá að nýta hæfileika sína.
Gildi ICEWEAR eru samskipti, metnaður, ánægja.
- Almenn lagerstörf, vörumóttaka, vörutýnsla, áfyllingar, tiltekt útkeyrsla.
- Vinnusemi
- Stundvísi
- Reglusemi
- Ökuréttindi
- Lyftarapróf er kostur
- Heiðarleiki
- Reynsla af lagerstörfum kostur