Vöru- og verkefnastjóri
Creditinfo leitar að drífandi og framsýnum vöru- og verkefnastjóra í teymi vöru- og verkefnastýringar félagsins. Við sérhæfum okkur í sjálfvirkum ákvarðanatökum, gagnaöflun og greiningum sem skapa virði fyrir yfir 1600 íslensk fyrirtæki. Við höfum brennandi áhuga á að vera með vöruþróun á heimsmælikvarða og hikum ekki við að prófa nýjar aðferðir eða hugmyndir. Vörustjóri mun vinna með úrvalsliði sérfræðinga og hafa áhrif á nánast allar hliðar fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á vöruþróun Creditinfo, þ.m.t. framtíðarsýn, forgangsröðun og kröfugerð.
- Samskipti við viðskiptavini, þarfagreining og aðstoð við innleiðingar.
- Greiningar á notkun og markaðstækifærum.
- Skilgreining og eftirfylgni hugbúnaðarverkefna sem styðja við stefnu varanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði eða tölvunarfræði
- Greiningarhæfni og góð færni í framsetningu gagna
- Góðir samskiptahæfileikar og frumkvæði
- Þekking á fjármála- eða tryggingastarfsemi er kostur
Auglýsing birt30. september 2024
Umsóknarfrestur13. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 25, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)
UT kennsluráðgjafi - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Innkaupa- og aðfangastjóri (Supply Chain Manager)
BIOEFFECT ehf.
Supply Chain Manager
NEWREST ICELAND ehf.
Aðstoðarmaður deildarstjóra / verkefnastjóri á útskriftardeild aldraðra
Landspítali
Verkefnastjóri í Regluvörslu Íslandsbanka
Íslandsbanki
Sérfræðingur í Business Central og LS Retail
Bláa Lónið
Scheme Relations Specialist
Rapyd Europe hf.
Tæknimanneskja í Vöruþróunardeild
Kerecis
Starfsmaður í Vöruþróunardeild
Kerecis