Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Viltu virkja þína starfsorku í þágu fasteigna ON?

Við hjá Orku náttúrunnar leitum að drífandi og lausnamiðuðum liðsstyrk í hlutverk sérfræðings fasteigna, húskerfa og svæða hjá virkjunum ON.

Deildinni tilheyra allar fasteignir á virkjanasvæði ON ásamt húskerfum í eigu fyrirtækisins, s.s. loftræstikerfi, aðgangs- og innbrotakerfi, myndavélakerfi og brunakerfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í hlutverkinu felst forgangsröðun, undirbúningur, eftirlit og yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni í nánu samstarfi við deildarstjóra og samstarfsfólk.

Þú munt taka virkan þátt í mótun ferla og umbótavinnu í tengslum við verkefnaflæði með það að markmiði að besta viðhaldsstjórnunarkerfi virkjana.

Sem sérfræðingur fasteigna og húskerfa berð þú ábyrgð á útgáfu verkbeiðna úr viðhaldsstjórnunarkerfi ON í samráði við deildarstjóra og aðra sérfræðinga, t.d. er varða gerð áhættumats, verklýsinga, áætlanagerða, öflun aðfanga, forgangsröðun verka og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila.

Vinnutíminn er frá klukkan 8:20-16:15 á mánudögum til fimmtudags og til klukkan 15:10 á föstudögum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sterk og rík öryggisvitund er skilyrði
  • Farsæl reynsla af verklegri vinnu
  • Samskiptafærni ásamt skipulögðum-, sjálfstæðum- og öguðum vinnubrögð
  • Góð tölvufærni og almenn tækniþekking
  • Reynsla af loftræstikerfum er kostur
  • Þekking á DMM viðhaldsstjórnunarkerfinu er kostur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi, s.s. í rafvirkjun
Auglýsing birt4. febrúar 2025
Umsóknarfrestur16. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.RafvirkjunPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar