Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur í rannsóknaskyni, á fimm starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.
Viltu vakta auðlindina við Mývatn?
Í grænu hagkerfi er lykilatriði að fara vel með þær auðlindir og eignir sem við pössum fyrir komandi kynslóðir. Auk þess að vinna rafmagn úr endurnýjanlegum auðlindum leggjum við hjá Landsvirkjun áherslu á að viðhalda mannvirkjum okkar sem best, til að lengja líftíma þeirra og fá sem mest út úr þeim.
Við óskum eftir að ráða vaktmann í öflugt teymi rekstrar og viðhalds á Mývatnssvæðinu, en þar rekum við Gufustöðina í Bjarnarflagi, Kröflustöð og Þeistareykjastöð. Í starfinu felst viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja og er það mjög fjölbreytt og krefjandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði vélfræði eða rafvirkjunar
- Þekking á viðhaldi búnaðar: loft-, véla-, vökva- og rafkerfa
- Reynsla af störfum tengdum raforkuvirkjum eða iðnaði er kostur
- Þekking í teikningalestri, ástandsmælingum og stjórnkerfum er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
- Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur9. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Kröfluvirkjun 153706, 660 Mývatn
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Bifvélavirki - Mechanic
BM Vallá
Rafvirkjar
VHE
Rafvirki
Raf-x
Starfsmenn í þjónustudeild
Blikksmiðurinn hf
Rafvirkjar óskast
AFL raflagnir ehf.
Vélstjóri - Vélfræðingur
RAWNQ AL SALAM INTERNATIONAL LLC
Lærður Rafvirki ( Sveinsbréf skilyrði )
Rafmagns og byggingamiðstöðin ehf
Eftirlit brunakerfa
Securitas
Sérfræðingur í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf
Kæli og frystikerfi. Þjónustumaður á Akureyri
Frost
Rafvirki
Frost
Kæli og frystikerfi. Þjónustumaður í Garðabæ
Frost